Uppreisn gegn hraðanum.
KYRRAN varð til þegar ég fór að taka eftir öllum flýtileiðunum sem ég tók í hversdeginum. Ég var sífellt að finna leiðir til að klára hlutina hraðar en fór að velta fyrir mér hvað færi fram hjá mér á leiðinni.
Úr þessum hugleiðingum spratt löngun til að skapa hluti sem bjóða upp á hægari augnablik. Hluti sem vekja forvitni, kalla á snertingu og verða hluti af litlum, hversdagslegum athöfnum.
Fyrir mér er KYRRAN uppreisn gegn hraðanum sem nútímalífið krefst af okkur. Tilraun til að gefa einföldum augnablikum meiri tíma og athygli. Að kveikja ljós, raða blómum eða finna áferð efnis undir fingrunum.