Baugskin er veggljós mótað úr fimleikahring, grip sem í sinni upprunalegu mynd er hannaður fyrir snertingu, styrk og líkamsvitund. Án snertingar missir hringurinn tilgang sinn. Í þessu verkefni er formið fært úr rými hreyfingar yfir í rými heimilisins, þar sem krafturinn umbreytist í mjúkan ljóma.
Ljósið er kveikt með rofa sem er hluti af gripnum sjálfum. Til að kveikja þarf að taka meðvitaða ákvörðun, stíga nær og snerta. Þessi athöfn skapar augnabliks tengingu milli manns og hlutar og dregur fram samband sem oft tapast í snertilausum og sjálfvirkum lausnum samtímans.
Efniviður ljóssins er valinn með tilliti til tíma og notkunar. Ómeðhöndlað messing patínerast og breytist með árunum, leður mýkist og mótast eftir snertingu og tréð ber með sér spor notkunar. Ljósinu er ekki aðeins ætlað að lýsa rými heldur að eldast með eiganda sínum og þróa með sér sögu. Með þessu verður hluturinn lifandi þátttakandi í daglegu lífi.
Baugskin er hannað sem samtal milli hreyfingar og kyrrðar, styrks og mýktar, ljóss og snertingar.